r/Iceland • u/HedonisticHenry • 1d ago
No Warrant, No Problem: New bill from minister of justice removes police restraint
https://grapevine.is/society/politics/2026/10/14/no-warrant-no-problem/Galið að þessi ,,frjálslynda ríkisstjórn” ætli að leyfa lögreglunni að hlera síma almennings án dómsúrskurðar. Ekki treysti ég íslensku lögreglunni fyrir svona valdi.
8
u/Vontenvenst 1d ago
Er einhver flokkur á Alþingi núna sem er ekki hallur undir svona stefnur?
Allir flokkar sem eru á þingi núna eru að styðja við eða hafa stutt við valdasamþjöppun.
Allur fagurgali um frelsi, mannréttindi og slíkt er blekking.
Eina frelsið er fyrir þau sjálf og þeirra eigin hóp - hin ríku og valdamiklu.
Ef að 'vinstri' flokkar eru að vinna með 'frjálslyndum' hægri flokkum, þá ertu að fá hægri sinnaða íhaldsama stjórn.
Það eru allir flokkar hérna íhaldsamir og mis mikið til hægri. Þeir sem eru lengst til vinstri eru í raun bara rétt hægra megin við miðju.
Þetta tuð mitt og röfl skiptir engu því þegar það kemur að því að skila tilgangslausum miða í ruslakassa, munu íslendingar, þar með talið meirihluti þeirra sem þetta lesa, kjósa íhaldsamt afl sem vinnur fyrir valdamesta minnihlutann.
8
u/TheoryBorn9839 1d ago
Þetta er ekki án dómsúrskurðar sem greinin eða frumvarpið segir, það væri bara eftir á frekar en fyrir, og væri skaðabótaskylt ef dómur endar á að vera ósammála.
Er enginn aðdáandi lögreglunnar, en get séð hvernig tæknin myndi þurfa viðbragð varðandi valdheimildir og hægt dómskerfi, en ég get ekki skilið af hverju þeir eru svona fljótir að fara í þetta en geta aldrei gert óháða nefnd sem rannsakar lögregluna, það hefur legið fyrir frá tímum rómar að það þurfi.
9
u/gerningur How do you like Iceland? 1d ago edited 1d ago
Málið er samt að það er alveg ömurlegt að eiga við ríkið. Bukmyndavelar bila alltaf a ögurstundu. Lögreglan eyðir sönnunargögnum (við höfum nýleg dæmi) og ríkið getur ráðið bestu lögfræðinganna. Ekkert innra eftirlit
Nálgunar á klárlega að vera: lattu fólk í friði nema góð ástæða sé til.
7
u/islhendaburt 1d ago
Skil heldur ekki af hverju það er ekki bara hægt að hafa dómara á bakvakt sem geti farið yfir og gefið úrskurð hraðar. Ef þetta er rafrænt getur ekki tekið meira en klukkutíma að rökstyðja fyrir dómara þörfina fyrir hlerunum.
2
u/allsbernafnmedrettu 🇧🇪 1d ago
og væri skaðabótaskylt ef dómur endar á að vera ósammála
Sem er aldrei að fara gerast
4
u/StefanOrvarSigmundss Sí ba bú la lú 1d ago edited 1d ago
Allt þetta tal um skipulagða glæpahópa; það hefur enginn hópur unnið landinu jafn mikinn skaða og fólkið sem situr á Alþingi á hverjum tíma.
Úrræði og valdheimildir sem settar eru fram til að sporna gegn neyðartilvikum verða fljótt hversdagslegar í höndum lögreglu, eins og tölurnar sýna, því eftirlit, eftirfylgni og afleiðingar eru engar.
11
u/gerningur How do you like Iceland? 1d ago edited 1d ago
Jebb alveg að skíta upp a bak..... se eftir sð hafa kosið viðreisn. Fíkniefni a götunni er enginn ástæða til að fara að takmarka grunn réttindi gagnvart ríkinu.
Yfirleitt villt þú að rikið láti þig í friði þbi ef að það brýtur a þér er ekkert grín að fá rettlæti