r/Iceland • • 15h ago

Er Cancel kúlturinn allur?

Post image

Hvernig er það, var ekki búið að slaufa þessum gæja? Hann er bara Golden boy Sýnar.

12 Upvotes

52 comments sorted by

•

u/tastin Menningarlegur ný-marxisti 14h ago

Gellan sem hann áreitti fyrirgaf honum opinberlega og hann fór í sjálfskipaða útlegð í meir en ár. Ég sé ekki ástæðu til að hann eigi að vera í holu þar til hann deyr.

Hann er eftir allt saman ekki reðurguðinn

•

u/RoyalAristocrat 14h ago

Reðursnuð

•

u/guttyxx 10h ago

Þvingó Reðursuð.

•

u/thorribeip 11h ago

Hann gekkst við sínu broti og bað stelpuna afsökunar og hún fyrirgaf honum. Veit líka til þess að þessi maður hefur unnið mikið í sjálfum sér. Það hlýtur að hafa eitthvað að segja.

•

u/kjarterinn 15h ago

Cancel kúltur hefur engar alvöru afleiðingar

•

u/Mysterious_Demand875 11h ago

Jú í stóra samhenginu en ekki á litla Íslandi.

Alex Jones býr einmitt í holu

•

u/torgeirz Þetta reddast 5h ago

Alex Jones var ekki cancelaður, hann var dæmdur til að borga milljarð dollara í skaðabætur og keyrður í svaðið af réttarkerfinu.

•

u/No-Bus8740 🇮🇸 15h ago

Ertu að meina það sem gerðist eiginlega ekki fyrir 10 árum síðan?

Hann er búinn að vera að stýra einum vinsælasta þætti Sýnar núna í einhver 7 eða 8 ár…..

•

u/RoyalAristocrat 15h ago

Jebb ég er að meina þegar hann káfaði á stelpu undir lögaldri.

•

u/CodeCleric Íslendingur 13h ago

Það má bara ekkert lengur! /s

•

u/GoldenBoyHal 12h ago

Jebb. Mér fyndist eiginlega hann ekki eiga að fá sviðsljósið eftir þannig brot

•

u/hnoj 🇮🇸 14h ago

Kjartan Guðjóns er líklega eina dæmið sem ég þekki um almennilega slaufun

•

u/Lucky_Person 14h ago

Var ekki líka einhver leikari í þjóðleikhúsinu sem leik Tarzan eða eitthvað slíkt sem var slaufað?

•

u/faster_banana 13h ago

jú, en hann datt bara gjörsamlega inní fórnarlambs-mentality strax og er þess vegna enn canceled (svo ég viti). Hann poppar stundum upp á samfélagsmiðlum með skrýtin myndbönd þar sem hann pirrar sig yfir konum og hvað þær séu ömurlegar, topp náungi.

•

u/faster_banana 13h ago

leiðrétting, hann færði sig yfir í að gera ferða/túristavídjó um ísland

•

u/Lucky_Person 12h ago

Mættir kannski edit-a upprunalega kommentið þitt vegna þess að ég veit ekki alveg hvað þú ert að leiðrétta s.s. hvað er að koma í staðinn fyrir hvað, eða hvort þú sért að bæta við upplýsingum.

•

u/Lucky_Person 12h ago

Ég man bara eftir viðtali sem hann gerði þar sem hann talaði um það hversu erfitt það var að fá vinnu og hann benti á að það væri hugsanlega út af þessari slaufun. Veit ekkert um hann þannig séð en vildi bara benda á að það voru einhverjir slaufaðir á þessum tíma.

•

u/Calcutec_1 Íslendingur í útlöndum 14h ago edited 14h ago

Og Ingò (réttilega), hann hefur ekki fengið gigg nema hjá miðflokknum og álíka í 10 ár eða eitthvað

•

u/villivillain Íslendingur 14h ago

Það eru líka óteljandi popparar sem hætta að fá gigg upp úr fertugt. Það er eðlilegt og skrifast ekki endilega á slaufun. Það eina sem gerir Ingó relevant er meint slaufun. 

•

u/Calcutec_1 Íslendingur í útlöndum 14h ago

Held þú sért að gleyma hvað hann var ógeðslega vinsæll hjá bolnum, fallið var alveg sæmilega hátt

•

u/villivillain Íslendingur 14h ago

Það getur alveg verið, en það sama á við um Kalla Bjarna, Einar Ágúst, Magna, Herbert Guðmundsson o.s.frv. Þessir gæjar brenna út. Ingó hefur ekkert gert í tæpan áratug annað en væla í hlaðvarpsviðtölum og kæra fólk fyrir meiðyrði.

•

u/talandi 🇮🇸 10h ago

Skrýtið að þú setir Hebba í sama flokk, að mínu mati er Hebbi örugglega einn vinsælasti tónlistarmaður landsins. Ég vinn aðeins í tæknibransanum tengt tónleikum og mér finnst eins og hann sé á öllum árshátíðum, veislum og uppákomum sem haldnar eru. Og það verður alltaf allt vitlaust þegar hann mætir. Ásamt Herra Hnetusmjör og nokkrum öðrum sem ég man ekki akkúrat núna. En þá eru þetta eru örugglega mest bókuðu listamenn landsins.

•

u/daggir69 Íslendingur 8h ago

Nóg að gera hjá Hebba og Magna. Magni var í auglýsingu fyrir olís ef mig minni rétt. Vinnur sem tónlistarkennari þegar hann er ekki að gigga.

Hebbi er búin að vera á fullu útum allt.

Hvað varðar Einar þá er hann bara veikur kallinn. Á bara erfitt með efni og áfengi. Fólk nennir ekki að fá hann í vinnu því hann fór að vera óáreiðanlegur. Svipað með Kalla Bjarna.

•

u/Calcutec_1 Íslendingur í útlöndum 13h ago

Sem er það sem ég sagði

> Og Ingò (réttilega), hann hefur ekki fengið gigg nema hjá miðflokknum og álíka í 10 ár eða eitthvað

•

u/villivillain Íslendingur 13h ago

Ok. Ég vil bara meina að meint slaufun sem þú talar um sé bara eðlileg kúrva á ferli poppara.

•

u/Calcutec_1 Íslendingur í útlöndum 13h ago

Ok þá ert þú alveg út að aka

•

u/hervararsaga 12h ago edited 10h ago

Ingó hefur verið að spila helling, á allskonar giggum, undanfarin ár. Sumir staðir fá hann aftur og aftur, það er eitthvað tengt hans heimabyggð og svæðum sem hann hefur tengsl við. Meira að segja ráðherra í ríkisstjórninni talaði um hann einsog guðsgjöf til tónlistar og mannkyns. Honum gengur bara betur núna ef eitthvað er. Er ekki að réttlæta það, heldur er þetta bara staðreynd. Fyrir svona 15 árum var það altalað að hann væri hættulegur og ungar stelpur ættu að vara sig á honum en núna er það altalað að hann hafi verið fórnarlamb og hafðu fyrir rangri sök af nafnleysingjum og að ekkert hafi verið til í ásökunum gegn honum. Það þýðir ekkert að minnast á að hann hafi verið bannaður af félagsmiðstöðvum og fleirum, flestir vilja ekki heyra það.

•

u/[deleted] 12h ago

[deleted]

•

u/hervararsaga 10h ago edited 10h ago

Hvað er rangt? Það eru nokkrir staðir sem fá hann reglulega til að spila og hann hefur líka komist í fréttirnar þegar hann hefur þurft að aflýsa vegna mótmæla, einsog gerðist í Sólheimum fyrr á þessu ári, og eins hefur hann verið að spila í einkasamkvæmum hjá áhrifavöldum og komið myndbönd af því á samfélagsmiðlum. Afhverju ætti ég að vera að skálda þetta? Og ég hélt að allir hefðu heyrt um viðtalið við Ingu Sæland þar sem hún tjáði aðdáun sína á honum. Og hann var líka að spila einhversstaðar um verslunarmannahelgina.

Þegar hann var að spila í félagsmiðstöðvum og grunnskólaböllum þá hefði hann aldrei getað fyllt tónleikasal, en hann gæti það núna. Ég skal viðurkenna að ég orðaði það illa þegar ég sagði að hann væri "rosavinsæll" hann er það klárlega ekki en samt er ansi stór hópur sem styður hann og neitar að viðurkenna að hann hafi mögulega gert eitthvað rangt.

•

u/freysg 12h ago

Minigarðurinn fékk hann sem kynni á einhvern viðburð fyrr á árinu og hefur þ.a.l. tapað mínum viðskiptum

Svo var ég að reyna að muna hvenær hann var með þjóðhátíðarlagið og sá að hann heldur áfram að sanka að sér giggum hjá stórum sem smáum. Greinilega engin slaufunarmenning á þessu landi þegar sögur af honum hafa gengið um í nær 20 ár og hann fær samt að troða upp

•

u/possiblyperhaps Handritin heim 📖 8h ago

Í Minigarð ég mæt ei framar,

mislíkaði þar einn kynnir.

Hætti að versla síðasta sumar;

sá’ann í Bónus, að mig minnir.

•

u/Sensitive-Menu-7806 13h ago

Því miður virðist hann hafa nóg að gera.

•

u/BankIOfnum Indriði 11h ago

Var einhver skandall í kringum hann? Ég missti greinilega af því.

•

u/Vikivaki landvættur 11h ago edited 10h ago

Finnst hann bara frekar ófyndinn og ómerkilegur. Þess vegna skil ég ekki hvað hann fær að stjórna pannel-leikja þáttum. Finnst hann enginn sérstakur sjarmur.

•

u/HrappurTh Velja sjálf(ur) / Custom 10h ago

Því hann bjó til þáttinn, framleiðir þáttinn, bókar alla keppendurna fyrir þáttinn, semur allar spurningarnar fyrir þáttinn, og er spyrillinn?

•

u/Vikivaki landvættur 10h ago

Hlaut að vera

•

u/Leppaluthi Jólasveinn 14h ago

Miðað við að Gylfi Sigurðsson er kominn aftur í landsliðið, þá já, slaufun er lokið. Samfélaginu finnst greinilega ekkert mál að menn ásakaðir um kynferðisbrot gegn manneskju undir lögaldri séu fulltrúar Íslands á alþjóðavettvangi og í því ljósi þá kemur ekki á óvart að fólki finnst bara allt í lagi að svona fólk sé í sjónvarpinu.

•

u/Plastic-While2737 🇮🇸 12h ago

Já, samfélaginu finnst ekkert mál að menn sem hafa verið ásakaðir um eitthvað, málið rannsakað og ekki ákært eða dæmt í því, spili íþróttaleiki.

•

u/Leppaluthi Jólasveinn 11h ago

Gætum ekki haft betri fulltrúa.

•

u/Thor_kills 15h ago

Hann er alltof fyndinn og charismatic til að verða slaufað.

•

u/bakhlidin Rúsínan í pylsuendanum 11h ago

Er hann það? Eg fylgist ekkert með þessum gaur en sá einhverntiman uppstand með honum þar sem allt grínið voru gamlir Dave Chapelle og Eddy Murphy brandarar á íslensku, frekar glatað.

•

u/[deleted] 9h ago

[deleted]

•

u/latefordinner86 🤮 9h ago

Ok semsagt það er nóg að þú gerir ein mistök og þá áttu bara að skríða ofan í holu og bíða eftir að drepast?

•

u/AlexTheIcelandic 8h ago

Uuu nei. Er ekki að segja það. Þetta er hin hliðin við okkar menningu, svart og hvítt. Það eru til fleiri litir.

Sjálfsagt að breyta um starfsvettvang. Hann er að dúlla sér í allskonar verkefnum sem ganga vel. Þarf ekki að vera í jafn áberandi hlutverkum og hann er í. Hugsa að hann hafi bara gaman af því og geri það þess vegna. En geri svosem ekkert ráð fyrir því að hann verði mikið lengur svona relevant.

Lögfræðingar, læknar og fleira missa réttindi við ýmis brot. Sem dæmi. Í flestum löndum kemstu ekki langt í pólitík ef þú gerðir ein mistök sem eru nógu stór.

Þannig já, það eru alveg brýr sem geta brunnið við ein mistök. En gerist ekki oft á Íslandi.

•

u/einarfridgeirs Íslendingur 14h ago

Ég held þetta sé frekar merki um að Sýn sé á lokametrunum. Örugglega hægt að fá hann frekar ódýrt í gigg.

•

u/Oswarez 🇮🇸 14h ago

Hann er einn af vinsælustu skemmtikröftum landsins.

•

u/einarfridgeirs Íslendingur 14h ago

Jæks, sýnir hversu duglegur ég hef verið í að fara út að skemmta mér undanfarinn áratug.

•

u/derpsterish beinskeyttur 15h ago

C’mon - hann er sko fagfjárfestir

•

u/[deleted] 15h ago edited 12h ago

[deleted]

•

u/polguyork Pissudúkka 12h ago

Flottur